Forsíða

-----------------

 Aðalstjórn
 Blak
 Fimleikar
 Frjálsar
 Handbolti
 Knattspyrna
 Körfubolti7
 Skíði
 Sund

-----------------

 

Ferðaskrifstofa Austurlands - FA TRAVEL
 
Málningarþjónusta Jóns og Þórarins sf
 

 

27. apríl 2007:   Ný æfingatafla f. sumarið.

 

 

Sjá hér:    Æfingatafla

 

23. apríl 2007:   Ferð MB10 og yngri til Akureyrar.

 

Í vetur hefur þó nokkuð stór hópur af ungum og áhugasömum körfuboltamönnum verið að æfa á fullu.  Einstaka stelpa hefur líka verið að æfa með þeim.  Þetta eru krakkar fæddir 1996 og síðar, þeir yngstu fæddir 2000.

 

Tveir elstu árgangarnir það er fæddir 1996 og 1997 fóru til Akureyrar um helgina (22. apríl) og léku æfingaleiki við Þór Ak.   Stóðu okkar strákar sig mjög vel en þetta var fyrst og fremst gert til að hafa gaman og fá smá leikreynslu en þessi hópur hefur enga jafnaldra hér nálægt til að leika við og tók ekki þátt í Íslandsmóti .  Eftir leik varið farið í pitsuhlaðborð á Greifanum - ekki slæm ferð.

 


Hópurinn tilbúinn í leikinn.


Ætli maður hafi það af að troða í þessum í leik ?

 

27. mars 2007:   Ríkið setur fé í ferðasjóð fyrir íþróttafélög !

 

Á vef RÚV kemur fram að ríkisstjórnin hefur ákveðið að koma á fót ferðasjóði íþróttafélaga og að árlegt framlag hennar í sjóðinn verði 90 milljónir króna. Því marki verði náð á þremur árum.

 

Þetta á eftir að gjörbreyta aðstöðu körfuknattleiksdeildar Hattar í framtíðinni.

 

Hér er úrdráttur úr bréfi sem formaður stjórnar körfuknattleiksdeildar Hattar sendi ÍSÍ fyrr í vetur þessu máli til stuðnings:

 

Mitt mat er að eina vandamálið sem um ræðir er (óeðlilega) hátt verðlag á flugferðum hér innanlands. Hægt er að komast á milli allra stað á innan við 2 kst. með aðstoð flugvéla og bílaleigubíla – þetta er því bara spurning um kostnað á flugi.

 

Ég ætla að reyna að skýra þetta nánar:

Ég er nýlega fluttur hingað austur á Egilsstaði (sept. 2005) en var áður í Mosfellsbænum.  Aðstöðumunur hvað varðar íþróttaiðkun kom mér algjörlega á óvart og ekki síst í hverju þessi munur liggur. Í raun er öll aðstaða varðandi æfingar og slíkt til staðar og svipuð og á höfuðborgarsvæðinu þó margt sé smærra í sniðum. Það eina sem ekki er að finna hér fyrir austan (eftir að gervigrashöllin var byggð á Reyðarfirði) er sennilega skautahöll og reiðhöll. Annað gildir þegar kemur að keppnum og mótum. Fótbolti er eina greinin þar sem hægt er að finna mót eða lið sem hægt er að heimsækja á bílum/rútum (ESSÓ, Nikulás og Króksmót). Þó er alltaf eitthvað af þessum mótum sem verður að sækja suður (t.d. úrslitakeppnir í Íslandsmótum og fleira).

 

Ég hef skipt mér af körfunni hér á Egilsstöðum eftir að ég flutti hingað og hef kynnst ýmsu í þessu sambandi. Allir útileikir mfl. nema gegn Þór Ak. kalla á flug suður eða vestur á Ísafjörð og er það oft á tíðum mun dýrara heldur en ef við fljúgum  til Köben, a.m.k. með Iceland Express.

 

Fjölliðamót í yngri flokkum eru auk þess langflest haldin á SV horninu. Hver ferð á þau hefur verið að kosta okkur tæplega 200.000,- kr (12-15 flugmiðar+ bílaleigubíll ) þannig að foreldrar sem þurfa að senda börnin sín 3-4 sinnum yfir veturinn suður, þurfa að vera þokkalega fjáð til að þetta gangi. Sumir krakkar eru auk þess mjög vel virk og eru að æfa 2-3 greinar.

 

Mér finnst að íþróttahreyfingin verði að ræða það í alvöru hvort lið sem verða reiða á sig á flugsamgöngur geti yfir höfuð til lengdar tekið þátt í Íslandsmótum eins og skipulagið er núna. Ef það gengur ekki að koma á jöfnun (sérstaklega ef um flugsamgöngur er að ræða) þá verður hreyfingin að mínu mati að koma á landshlutamótum eða einhverju álíka. Við og Ísfirðingar ( ÍBV eru ekki mikið betur settir) búum við þá sérstöðu að við getum ekki notað rútur því það fer dagur í hvora leiðina fyrir sig meðan það tekur aðeins eina klukkustund í flugi eins og þú kannast við – það er því einungis flugkostnaðurinn sem þrengir okkar aðstöðu umfram hin liðin.

 

Það er ekki hægt að tala um Íslandsmót þegar talsverðum hópi landsmanna er gert nánast ókleift að vera með sökum kostnaðar, sem er m.a. afleiðing af skipulagi móta.

 

-es

25. mars 2007:   Leikir á Dalvík.

B liðið tapaði báðum leikjum sínum á Dalvík um helgina.  Seinni leikurinn var mun betri.  Emil og Kobbi fóru fyrir hópnum og Sveinbjörn var duglegur í vörninni að vanda.  Ingvar hefur verið að bæta sig í vetur og setti 17 stig í lokaleiknum.  Þrátt fyrir tap í leikjunum,  þá var reynslan góð og andinn góður í hópnum við heimkomuna.

23. mars 2007:   Leikir á Dalvík og NCAA um helgina.

B liðið okkar leikur tvo leiki á Dalvík um helgina.

Fyrri leikurinn verður kl. 17:00 á laugardaginn.  Síðari leikurinn verðu svo kl. 13:00 á sunnudaginn.

Meðan verið er að bíða eftir þessum leikjum er hægt að horfa á beinar útsendingar frá leikjum háskóladeildinni í Bandaríkjunum hér: NCAA

 

22. mars 2007:   Kynningarátak Hattar.

Körfuboltamenn á Héraði eru farnir í herferð um fjórðunginn og ætla að bjóða uppá námskeið í körfubolta fyrir börn og unglinga.

Það er frítt fyrir alla á námskeiðið og er þetta fyrst og fremst kynning á íþróttinni.

Námskeiðið hefur fengið styrki úr Spretti (ÚÍA og Alcoa) og menntamálaráðuneytinu. 

Fyrsta námskeiðið var haldið 28. janúar síðastliðinn á Fáskrúðsfirði og gekk vel.  Hafa Fáskrúðsfirðingar þegar beðið um frekari námskeið.

Stutt kynning var á Seyðisfirði 18. febrúar en gert er ráð fyrir að fara í heimsókn í skólann þar

Námskeiðunum er skipt í tvennt:

klukka 10:00 -> námskeið fyrir 11 ára (f. 1995) og yngri. – lágar körfur.

eftir hádegi kl. 12:30 fyrir 12 ára (f. 1994) og eldri - hærri körfur.

 Ætlunin er að vera á fleiri stöðum

Vopnafjörður farið í skólann

Reyðarfjörður tímasetning óákveðin

Eskifjörður tímasetning óákveðin

Norðfjörður - tímasetning óákveðin

Við hvetjum alla til að mæta og prófa nýja íþrótt undir leiðsögn fagmanna.

Þjálfarar á námskeiðinu eru Gísli Sigurðarson og Viggó Skúlason, en þeir hafa spilað og þjálfað í mörg ár með Hetti, Gísli er auk þess menntaður íþróttakennari. Þeim til aðstoðar eru síðan efnilegir krakkar úr yngri flokkum Hattar og leikmenn meistaraflokks eftir því sem við á hverju sinni.

Ætlunin er að enda átakið með vormóti í körfubolta í íþróttahúsinu á Egilsstöðum.

 

20. mars 2007:   Tveir leikir á Dalvík um næstu helgi.

B liðið okkar leikur tvo leiki á Dalvík um helgina.  9. flokkurinn var að gera góða hluti með strákunum um síðustu helgi og oft hrein unun að horfa á þessa gutta gegn fullorðnum leikmönnum sem sumir munu jafnvel spila í úrvalsdeild að ári.  Verður gaman að sjá hvernig gengur á móti Dalvík en þeir eru með gott 2. deildar lið.

19. mars 2007:   Tap gegn Þór Ak.

Á laugardaginn áttust við Höttur og Þór Ak., bæði A og B lið.  Þór fór með sigur af hólmi í báðum leikjunum.  Báðir leikirnir höfðu þó sína jákvæðu hliðar. 

Meistaraflokkur spilað ágætan körfuknattleik og var jafnt á með liðunum mest allan leikinn.  Í fjórðaleikhluta sigu Þórsarar fram úr og unnu á endanum með 12 stigum 82-94.  Allir áttu góðan leik og samspil var á tíðum mjög gott.  Það var einna helst vörnin sem var gloppótt á köflum.  Athygli vakti góð frammistaða elsta (Hannibal)  og yngsta leikmannsins (Emil Atli).  Björgvin Karl átti mjög góða leik setti 29 stig, en liðið var óvenju samstillt og menn léku vel hvor fyrir  annan.  Góður árangur miðað við að það vantaði nokkra lykilmenn í okkar liði en Þór var með sitt sterkasta lið að undanskildum kananum sem hefur verið með þeim nú eftir áramótin.

Þór Akureyri er gott lið með mikla breidd og engin tilviljun að þeir fara beint upp. Óskum við hjá Hetti þeim góðs gengis næsta vetur og þökkum fyrir veturinn.

Fyrir leik aðalliðanna áttust við B lið félaganna.  Sá leikur tapaðist einnig 60-76

Góðu fréttirnar fyrir okkur eru hinsvegar þær að 9. flokki var boðið að öðlast meiri reynslu og taka leikinn með aðstoð nokkurra eldri kappa. Þeir stóðu sig fram öllum vonum og áttu frábæran leik. Sem dæmi má nefna að Kristófer setti 2 þrista og eina 2 stiga körfu á lokakaflanum.  Jónas Hafsteins. og Sigmar áttu marga frábæra takta sem oft gáfu bæði körfu og víti. Ási reyndist mjög drjúgur í fráköstum og baráttu undir, en annars sáu eldri leikmenn að mestu um þann þátt í okkar leik.  Greinilegt er að þeir strákarnir voru vel samæfðir og Viggó hefur unnið gott starf í vetur.

16. mars 2007:    Lokaleikur á morgun.

Ormsson - Verslunin Vík, býður öllum á leikinn.

Nú er komið að lokum þessa erfiða keppnistímabils hjá Hetti.  Eftir að hafa unnið fyrstu tvo leikina í vetur hefur gengið illa að landa sigrum þrátt fyrir að margir leikir okkar manna hafi verið mjög spennandi og úrslitin ráðist í framlengingum eða á lokasekúndunum.  Það er erfitt að halda uppi keppnisandanum og sjálfstraustinu þegar svona gengur. 

Ýmislegt hefur verið að hjá okkur í vetur.  Meiðsli hafa verið talsverð má nefna Eugene, Milosz, Loft og Jónas Hafþór í því sambandi.  Fleira hefur verið að í vetur en nú verður það lagt til hliðar og menn einbeita sér að leiknu um helgina.

Það hvað þetta hefur ávallt verið tæpt  styrkir okkur í þeirri trú að við getum að lokum landað sigri.  Við erum ekki örlagatrúar.  Nú er að sjá hvað gerist í lokaleiknum.  Það er ekki spurning að andstæðingarnir verða erfiðir því Þór Ak. hafa sýnt mikla yfirburði og tryggt  sér sæti í úrvalsdeild án þess að fara í úrslitakeppnina.

Ef einhvertíma þarf að styðja við bakið á okkar mönnum þá er það á svona stundum.  Við hvetjum því alla sem það geta að koma og sjá sigurliðið í 1. deild keppa við okkar menn, sem þurfa að sanna hvað í þeim býr.

Nú líður að lokum þessa starfsárs og vill stjórnin þakka leikmönnum, stuðningsaðilum, Héraðsbúum og öllum Austfirðingum fyrir samstarfið í vetur.

14. mars 2007:    Stulli opnar golfverslun !.

Sturla Höskuldsson einn af lykilleikmönnum Hattar í vetur er mikill golfari og golfkennari (IPGA).  Hann var að opna golfverslun í samvinnu við Hole in One golfverslun.  Verður haldin opnunarhátíð í búðinni á föstudaginn daginn fyrir lokaleik meistaraflokks í vetur.  Verslunin verður í Miðvangi (Kleinunni).  Óskum við Sturlu og samstarfsaðilum hans til hamingju með verslunina.  Hér til hliðar má sjá Stulla setja eina 2 stiga (hole in one !!!).

 

13. mars 2007:    Ný æfingatafla.

Þar sem meistaraflokkur lýkur keppni á þessum vetri á laugardaginn og nokkrar breytingar hafa verið í yngri flokkunum þá var sest niður í kvöld og sett upp ný æfingartafla. Töfluna má finna hér: Æfingatafla 

11. mars 2007:    Tapleikir í Reykjavík og Kópavogi.

Því miður tókst okkar mönnum ekki að vinna  leiki helgarinnar.  Nú er bara einn leikur eftir fyrir okkar menn til að sýna hvað í þeim býr og að þeir eigi ekki skilið þá stöðu sem liðið er í. 

 

Það er hvorki hægt að kenna einstökum leikmönnum né þjálfaranum um hvernig komið er fyrir þeim heldur miklu frekar liðsheildinni. Einhver skortur á félagsþroska virðist einkenna okkar leikmenn.  Menn verða að hefja sig upp úr þessu ástandi.

 

Þrátt fyrir tapleiki þá var ferðin að vissu leyti til fjár því flestir leikmenn sýndu góðan félagsanda og samstöðu í verki og tóku að sér að flytja bíla fyrir bílaleiguna Hertz og vinna þannig inn peninga fyrir félagið og um leið að spara flugfarið austur.  Það er mikið á sig lagt eftir tvo erfiða leiki að leggja í akstur austur á land að kvöldlagi.  En þetta gæti verið jákvætt skref í undirbúningi fyrir lokaleikinn á laugardaginn næsta og vonandi þjappar þetta þessum leikmönnum saman og styrkir liðsheildina.  Stjórnin er að minnsta kosti þakklát og ætlar að styðja við bakið á þeim eins vel og kostur er í lokaleiknum og vonar að Austfirðingar allir geri slíkt hið sama. 

 

7. mars 2007:    Gott gengi hjá yngri flokkum í 3. umferð í fjölliðamótum KKÍ.
 

Í lok febrúar fór 9. flokkurinn og keppti í fjölliðamóti í Seljaskóla.  Lentu þeir í öðru sæti og töpuðu fyrir Keflavík sem sigraði riðilinn með einungis 5 stigum.  Ljóst er að þarna eru ferðinni mjög góðir framtíðarleikmenn hjá Hetti. Sjá má úrslit leikja hér.

 

Um síðustu helgi fór MB11 (6. bekkur) og keppti í Garðabænum.  Þeir lentu líka í öðru sæti og stóðu sig mjög vel.  Þeir kepptu í B riðli og hefðu með sigri í riðlinum fengið tækifæri til þess að keppa um Íslandmeistaratitil.  Árangur þeirra er því frábær.  Sjá má úrslit leikja hér.

 

Að lokum má minna á að 7 flokkur náði líka frábærum árangir í 3. umferð en þeir léku fyrr í febrúarmánuði hér á Egilsstöðum og lentu líka í öðru sæti eins og hinir flokkarnir og voru reyndar jafnir efstu mönnum en komust ekki áfram vegna þess að þeir töpuðu í innbyrðis viðureign. Sjá má úrslit leikja hér.

 

6. mars 2007:    Spurning dagsins !
 

Hvað er líkt með West Ham og Hetti ?

...ekki meira um það.  Næstu leikir:

Lau. 10.mar.2007 Kennaraháskólin     15.00 Valur - Höttur
Sun. 11.mar.2007 Smárinn                  16.00 Breiðablik - Höttur
 

 

1. mars 2007:    Leikur um helgina gegn Ármanni/Þrótti
 

Okkar menn fara í bæinn og leika kl. 14:30 í Hagaskóla gegn Ármanni/Þrótti í Reykjavík.  Þetta er leikur sem frestað var í haust vegna veðurs og er Milosz því ekki löglegur.

------------------------------------------------------------

Kynningarátak Hattar á Austurlandi gengur vel undir stjórn þeirra Viggós Skúlasonar og Gísla Sigurðarsonar.  Hér má sjá Viggó sýna æfingar hjá eldri krökkunum sem mættu á Fáskrúðsfirði:

23. febrúar 2007:    Aftur tap gegn FSu
 

Þrátt fyrir frábæran stuðning og skemmtilega umgjörð sem Intrum og Domus eiga skilið miklar þakkir fyrir, þá hafðist ekki sigur í leiknum í dag.  Frekari greining er óþörf en vonandi taka menn sig saman í andlitinu og enda tímabilið með þokkalegri reisn.  Stöðuna í deildinni má sjá hér.

9. flokkur er að fara að keppa í fjölliðamóti í Seljaskóla á morgun og sunnudag.  Þeir hafa verið að spila fínan körfubolta í vetur og eiga góða möguleika á því að vinna sinn riðill.  Óskum við þeim góðs gengis.


22. febrúar 2007:    FSu - Höttur á morgun föstudag kl. 18:30 í íþróttahúsinu á Egilsstöðum -
Frítt inn í boði Domus og Intrum á Íslandi - allir mæta sem geta !!!

Næstkomandi föstudag (23. feb) koma þeir Selfyssingar hingað austur og keppa við okkar menn. 
Intrum á Íslandi og fasteignasalan Domus sem undanfarið hafa verið í Lyngásnum opna nýja skrifstofu að Kaupvangi 3a þennan sama dag.  Af því tilefni bjóða þeir öllum Austfirðingum á körfuknattleikinn kl. 18:30 í íþróttahúsinu á Egilsstöðum.
Körfuknattleiksdeildin þakkar þeim stuðninginn og hvetur alla til að nýta sér þetta tækifæri og sjá hörkuleik sem skiptir okkar menn miklu máli.  Oft var þörf en nú er nauðsyn að sýna hvað í stuðningsmönnum liðsins býr og hvetja ótæpilega! 
Frítt inn í boði
Domus og Intrum á Íslandi.


Nýtt húsnæði Intrum og Domus á Egilsstöðum

20. febrúar 2007: FSu - Höttur - Naumt tap eftir framlengingu.
Annar leikurinn í vetur sem tapast eftir framlengingu !

FSu vann leikinn 116-111 eftir framlengingu en 84-84 voru lokatölur leiksins. Okkar menn sýndu hetjulega baráttu eftir slakan fyrri hálfleik og náðu að jafna leikinn.  En eins og í svo mörgum leikjum í vetur þá náðum við ekki að klára dæmið í þetta sinn
...gerum það hins vegar á föstudaginn kemur !
Viðar Örn var sjóðheitur í leiknum og setti 11 3 stiga körfur og skoraði alls 44 stig.  Nú er bara að Viðar Örn og félagar haldi sér heitum og vinni leikinn á föstudaginn.

18. febrúar 2007: Tap hjá B liðinu gegn Dalvík.

Þrátt fyrir stórleik Kobba sem raðaði niður þristum í dag og endaði með að setja 34 stig þá tapaði B liðið með einu stigi í leik gegn Dalvík 77-78.  Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann og ágæt skemmtun.  Sömu lið áttust við á Seyðisfirði í gær og tapaðist sá leikur einnig. 

14. febrúar 2007: B liðið gegn Dalvík og mfl gegn FSu.

Næsti leikur meistaraflokks verður gegn FSu á Selfossi næstkomandi þriðjudag.  Föstudaginn 23. febrúar koma svo FSu menn hingað austur og leika í ÍÞE kl. 18:30.

Um næstu helgi fær B lið Hattar heimsókn frá Dalvík.  Leikið verður bæði laugardag og sunnudag.

7. febrúar 2007: Leikjum B liðsins frestað.

Meiðsli eru að hrjá okkar menn nú meira en nokkru sinni.  Jónas Hafþór skar sig í höndina við störf og verður líklega frá út tímabilið.  Eugene hefur verið meiddur og náði sér alls ekki á strik í leikjunum um síðustu helgi og fleiri eiga við meiðsli að stríða.

Til stóð að B lið Hattar færi og spilaði nokkra leiki í Eyjafirðinum um helgina.  Af því getur því miður ekki orðið og hefur leikjunum verið frestað.

5. febrúar 2007: Mikið að gerast í körfunni um næstu helgi.

Haldið verður fjölliðamót í 7fl. hér á Egilsstöðum um næstu helgi.  Sjá umfjöllun hér.

B lið Hattar fer og leikur tvo leiki í Eyjafirðinum um helgina.  Leikið verður við Dalvík og B lið Þórs Ak.

Síðustu leikir meistaraflokks hafa verið erfiðir og tekið á mannskapinn.  Meiðsli eru að hrjá Eugene, Björgvin Karl og Loft. Fleiri eiga síðan við minniháttar meiðsli að stríða.  Næsti leikur er ekki fyrr en 20. febrúar við FSu og er vonandi að hvíldin verði næg til að menn geti jafnað sig og komið grimmir til leiks.  Oft var þörf en nú er nauðsyn.

3. febrúar 2007: -91-104 tap fyrir KFÍ á útivelli

Sjá umfjöllun KFÍ um leikinn hér.

Ekkert verður fjallað um leikinn gegn Stjörnunni á föstudagskvöldið!

26. janúar 2007: -97-100 tap fyrir Stjörnunni

Einhvern tímann hefðu 97 stig dugað !  Okkar menn höfðu greinilega tekið sig saman í andlitinu og þjappað sér betur saman og áttu ágætan leik   ...en töpuðu samt.  Helst virtist skorta meiri kraft í vörninni en sóknarleikurinn var oft á tíðum mjög góður.   Mikil stemmning var í húsinu, glæsileg trommusóló á köflum! 

Maður leiksins var án efa Eugene, en flestir okkar manna voru að skila ágætum leik.

Fleiri eru reyndar að tapa naumt: sjá hér

Næstu heimaleikir:

Fös. 23.feb.2007   Egilsstaðir     18.30 Höttur - FSu
Lau. 17.mar.2007  Egilsstaðir     18.00 Höttur - Þór Ak.

-es

 

23. janúar 2007 - Næsti leikur við Stjörnuna

 

Næsti leikur er gegn Stjörnunni föstudaginn 26. janúar, kl. 18:30

Það gengur bara betur næst heyrðist hvíslað eftir leik okkar manna og KFÍ 14. janúar síðastliðinn.  Og nú er komið að því !

Við sáum hvernig landsliðið í handbolta reif sig upp á HM og kom eins og grimmir úlfar í leikinn á móti Frökkum.  Þannig ætla Hattarmenn að mæta Stjörnunni á föstudaginn.

Síðasti leikur átti sér dapurlegan endi.  Hinsvegar má segja að allir leikir okkar manna í vetur hafi boðið upp á sjóðandi heita spennu og tvísýn úrslit.  Fyrir utan Eugene átti Loftur Þór besta leik okkar manna, en á köflum mátti sjá skemmtileg tilþrif og leikfléttur þó leikurinn hafi dottið niður á talsvert lægra plan þess á milli.

Um síðustu helgi dreif megnið af leikmönnum liðsins sig á þorrablót.  Vonum við að hákarlinn og hrútspungarnir skili sér í æðum okkar leikmanna og leikmönnum Stjörnunnar verði sýnt að það er ekki nóg að vera „sunnan af Nesjum” til að geta eitthvað í körfubolta.

Milosz Krajewski hinn pólski er að komast betur inn í hópinn og verður gaman að sjá hvernig honum vegnar í næsta leik.  Það er mikið af pólverjum hér á Austurlandi og því ánægjulegt að vera með fulltrúa þeirra í liðinu hjá okkur.  Að þessu sinni verður öllum pólverjum boðið frítt á leikinn og vonumst við til að þeir fjölmenni og styðji sinn mann og liðið allt að sjálfsögðu.

Á vef KKÍ má finna samantekt á tölfræði leikjanna í vetur.  Þar er leikmönnum gefinn einkunn eftir því hve mikið þeir skora, vinna af boltum, tapa boltum, ná af fráköstum o.s.frv..  Eugene hefur klárlega staðið sig jafnbest okkar leikmanna í vetur samkvæmt þessari samantekt.  Sjá:  http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2007/00002489/HOTTUR__.htm

Í haust fengum við Keflavík í heimsókn í bikarkeppninni.  Hér má sjá Magnús Gunnarsson leikmann þeirra eiga snilldartilþrif í stjörnuleiknum um daginn, myndband sem vert er að skoða -
http://www.fjolnir.is/fjolnir/karfa/undirsida-fretta/?cat_id=34035&ew_0_a_id=256974 .

Í febrúar fer svo af stað þriðja umferð í Íslandsmóti yngri flokka.  Vonir standa til að við fáum eitt mót (7fl. kk) hingað austur.  Ef af verður þá verður það áreiðanlega kátt í Höllinni helgina 10. - 11. febrúar.  Gengi okkar manna hefur verið gott MB 11 (f. 1995) eru komnir í B riðil og 7fl. og 9fl hafa verið mjög nálgægt því að fara upp í B riðil einnig, þó herslumuninn hafi vantað.  Til að eiga möguleika á því að verða Íslandsmeistari verða liðin að komast upp í A riðil.

 


 

 

 
 
Upplýsingar
Æfingatafla
 
Myndir - væntanl.
 
meistaraflokkur
Unglingaliðið B-lið
9. flokkur
8. flokkur og 7. flokkur
Minnibolti - 11 ára og yngri
Stelpur
Sérdeildin - old boys
 
KKÍ
1. deild
2. deild
Tölfræði
KARFAN
NBA